jueves, 25 de enero de 2007

spænskir bankar


Nú vill svo til að ég er búin að vera blönk síðan ég kom aftur til spánar...sem er jú frekar óþægilegt þar sem útsölur eru núna í fullum gangi. Ég átti að fá pening inn á reikninginn minn hérna í dag, fór með ávísun frá Íslandi fyrsta daginn minn hérna og kallarnir í bankanum sögðu mér að það myndi taka smá tíma til að fá ávísunina í gegn þar sem hún er útlensk. Ég fékk þessvegna að borga leiguna aðeins seinna ( átti að borga hana í dag ) en í morgun þegar ég kíkti á reikninginn minn þá sá ég að þetta er ENN ekki komið í gegn.

Djö gengur alltaf allt hérna ógeðslega hægt...anda inn anda út. Ég get ekki einu sinni keypt inneign inn á símann minn.


Eníveis, til hamingju Lilja mín fyrir að vera sú fyrsta til að kvitta...ég er mjög stolt af þér fyrir afrekið!
ps. myndin sem fylgir er af Halla og Raggý þegar þau komu í heimsókn. Halli var afskaplega hrifinn af guinnes bjórnum eins og sjá má...

martes, 23 de enero de 2007

Nýtt blogg?

Jæja, orðin soldið leið á gamla blogginu svo ég ætla að prófa þetta og sjá hvort virki....jibbí!