lunes, 11 de junio de 2007

Grjónagrautur




Tók mig til í gær og bjó til grjónagraut. Get reyndar ekki sagt að ég hafi verið neitt svakalega professional en ég þurfti að raspa kanilstylka því við áttum ekki kanel í dufti. Það var mikið hlegið að aðförunum og meðleigjendum leist ekkert á þetta en á endanum bragðaðist hann bara ágætlega þó ég segi sjálf frá...þó svo að grjónagrauturinn hennar mömmu sé nú alltaf bestur.

Er annars komin með einhverja helvítis kvefdrullu, ojá kvefið hefur nú ekki yfirgefið mann þó maður hafi farið alla leið til Spánar...óþolandi hvað ég kvefast alltaf. Einu sinni fór ég til læknis því ég var búin að vera með kvef í u.þ.b. 2 ár stanslaust. Hún sagði mér að ég væri með það sem kallast "kvefnef" og lýsir sjúkdómsgreiningin sér þannig að þú losnar aldrei almennilega við kvef og þarft meira og minna alltaf að vera að snýta þér. Mjög skemmtilegt, sérstaklega því við þessum "sjúkdómi" er engin lækning.

Fer núna að styttast í verkefnaskil, nánar tiltekið þann 21. júní. Guð hvað það verður gott að klára þetta allt saman, þó svo að það sé alltaf nokkuð mikið brjálæði síðustu dagana. Veit ekki alveg hvað ég er búin að koma mér út í, vegna þess að í framtíðinni mun ég ekki eiga mér mikið líf. Einn kennaranna er alltaf að segja okkur að við munum ekki eiga mikinn tima fyrir neitt annað en vinnu í framtíðinni. Ohhh EN GAMAN! og ég sem ætlaði að eignast 5 börn, veit ekki hvort ég muni hafa tíma fyrir það. Jæja, stofna kannski bara mitt eigið fyrirtæki og það verður litla barnið mitt :)

Barinn minn "Bar Barbara" gengur ágætlega, er búin með 120 blaðsíðurnar af 3D teikningunum sem er hluti af því sem við þurfum að skila. Núna þarf ég að teikna upp í þrívídd framhlið hússins og svo þarf ég að klára ýmislegt tæknilegt; teikningar af vatns-og rafmagnsleiðslum o.s.frv.

Hér er annars kominn nýr "flatmate". Sá er frekar úldinn eitthvað og hálf subbulegur. Pinkulítill og ræfilslegur en er lögregla og segist hafa verið lífvörður hérna í den!! Gengur alltaf um með handklæði um mittið og spilar Robbie Williams í botn á hverjum degi. Mér hálfbýður við honum greyinu. Leiðinlegt að segja það eeeen....

Ekki meira í bili

pís át!


2 comentarios:

Anónimo dijo...

Úúú namm grjónagrautur...mér langar í!
Hey á fimmtudaginn klára ég prófin og þá er planið að fara beint niður á strönd... botellón y nadar en el mar....q te parece??? ;)
Þú veist allavega hvar þú finnur mig ef þig langar að koma verðum nú að hittast eitthvað áður en ég yfirgef Spánarveldi, allavega þann 21.!!!!

Anónimo dijo...

ok varð bara að leiðrétta þetta því það á víst að vera ,,mig langar í" hehe