jueves, 5 de abril de 2007

back from London



Guð hvað það var ógó gaman að fara til UK aftur og hitta alla, og já ég hitti bókstaflega alla...meira að segja Adda bró sem var að koma úr ferðalagi frá Nepal.

Fór semsagt í brúðkaup til Kerry og Terry á laugardeginum og það var ekkert smá flott...var með tárin í augunum alla athöfnina vegna þess að þetta var einfaldlega svo fallegt. Stutt athöfn og svo héldu þau bæði stutta ræðu sem hreinlega fór alveg með mig og mína grátkirtla. Skildi aldrei í öllum konunum sem grenja í brúðkaupum en ójá ég er sko orðin ein af þeim konum...and there´s no turning back hoho.

Í veislunni var svo líka þetta svaka partí og ég náði að dansa af mér fæturnar með öllu skemmtilega fólkinu...ohh hvað þetta var gaman. Heyrði reyndar af því seinna að það hafi verið slagsmál ( eins og gengur nú og gerist )í gangi en ég missti einhvernvegin af því...

Sigga sæta færði mér svo ÍSLENSKT páskaegg. Milljón thanks elskan mín!!! Þú ert æði. Ætla svo að njóta þess með góðu mjólkurglasi!
Hlakka svo til að koma heim annars í sumar til að knúsa alla sætu vini mína og fjölskyldu almennilega og njóta bestu sumra heims á besta landi heims! ( djö er maður eitthvað sentimental! )

Náði svo að hitta hann sæta bróður minn Adda í nokkra klukkutíma áður en hann fór í flugið heim til Íslands. Ekkert smá gaman að sjá hann aftur, leit rosa vel út strákurinn og greinilega hafði það voða gaman úti í Nepal í göngunni sinni. Sýndi mér ekkert smá ógeðslega flottar myndir af landslaginu þarna. Og svo færði hann mér rosa flott sjal frá Nepal...þvílíkt flott. Verst að það er svo flott að ég mun líklega ekki tíma að nota það neitt. En anyways...
Var soldið erfitt að kveðja alla aftur...en ég lofaði heimsókn fljótlega aftur, væri gaman að skreppa í sumar með öllum á pubbinn.
Jú og svo ætla ég pottþétt til Brighton í heimsókn til hans fallega fallega Shane rúmfélaga sem er hreinlega að meika það þarna úti...þarf bara að drífa sig í að finna fallega menn handa okkur báðum hehehe!



Jæja meira er það nú ekki í bili....því miður á ég ekki myndavél í augnablikinu svo ég get ekki sett inn myndir frá ferðinni minni but hey!


Sjáumst folks!

back from London

Guð hvað það var ógó gaman að fara til UK aftur og hitta alla, og já ég hitti bókstaflega alla...meira að segja Adda bró sem var að koma úr ferðalagi frá Nepal.

Fór semsagt í brúðkaup til Kerry og Terry á laugardeginum og það var ekkert smá flott...var með tárin í augunum alla athöfnina vegna þess að þetta var einfaldlega svo fallegt. Stutt athöfn og svo héldu þau bæði stutta ræðu sem hreinlega fór alveg með mig og mína grátkirtla. Skildi aldrei í öllum konunum sem grenja í brúðkaupum en ójá ég er sko orðin ein af þeim konum...and there´s no turning back hoho.

Í veislunni var svo líka þetta svaka partí og ég náði að dansa af mér fæturnar með öllu skemmtilega fólkinu...ohh hvað þetta var gaman. Heyrði reyndar af því seinna að það hafi verið slagsmál ( eins og gengur nú og gerist )í gangi en ég missti einhvernvegin af því...

Sigga sæta færði mér svo ÍSLENSKT páskaegg. Milljón thanks elskan mín!!! Þú ert æði. Ætla svo að njóta þess með góðu mjólkurglasi!
Hlakka svo til að koma heim annars í sumar til að knúsa alla sætu vini mína og fjölskyldu almennilega og njóta bestu sumra heims á besta landi heims! ( djö er maður eitthvað sentimental! )

Náði svo að hitta hann sæta bróður minn Adda í nokkra klukkutíma áður en hann fór í flugið heim til Íslands. Ekkert smá gaman að sjá hann aftur, leit rosa vel út strákurinn og greinilega hafði það voða gaman úti í Nepal í göngunni sinni. Sýndi mér ekkert smá ógeðslega flottar myndir af landslaginu þarna. Og svo færði hann mér rosa flott sjal frá Nepal...þvílíkt flott. Verst að það er svo flott að ég mun líklega ekki tíma að nota það neitt. En anyways...
Var soldið erfitt að kveðja alla aftur...en ég lofaði heimsókn fljótlega aftur, væri gaman að skreppa í sumar með öllum á pubbinn.
Jú og svo ætla ég pottþétt til Brighton í heimsókn til hans fallega fallega

lunes, 26 de marzo de 2007

Sutton SM1 2SB






Er að fara til London í vikunni, get ekki beðið! Kerry og Terry eru að fara að gifta sig í einhverjum kastala f utan borgina og svo á sunnudaginn vill svo til að addi bró verður þarna eftir ferðalagið sitt til nepal svo við munum líklega halda hið árlega reunion með miklum fögnuði. Talaði við Önnu vinkonu í dag og ég má fá að gista hjá þeim svo það verður voða gott, fæ að gista við hliðina á honum Jóni Antoni krúttmaga!






Annars bara allt fínt héðan, nokkuð rólegt eiginlega bara. Er reyndar að verða nokkuð pirruð á einni stelpunni sem ég bý með. Hún er tvítug frá Þýskalandi og er mesta subba sem ég hef nokkurn tíma séð. í gær var hún að þvo á sér fæturnar í baðherbergisvasknum! og labbaði svo um alla íbúð án þess að þurrka sér. Eg er samt svo mikill auli að ég þori aldrei að segja neitt. Svo um daginn opnaði ég ísskápinn og þá var einhver búinn að setja inn óhreinan disk þar, skil ekki í svona. Allavega, kærastinn hennar er frá Túnis sem er ekki frásögu færandi nema hvað að hann var í heimsókn núna í vikunni ( fór í dag ) og stúlkan tók upp á því að setja upp blæju (af trúarlegum ástæðum (þó svo að í Túnis er bannað með lögum að vera með slæðu og hvorki mamma hans né systur gangi með slæðu)) hún er semsagt búin að skipta um trú útaf honum, og vill ekki vekja upp löngum hjá öðrum karlmönnum. Hún heldur því fram að Islam hafi bjargað lífi sínu því í kristni og í vestrænu samfélagi líðist allt of mikið af ósiðum og hún hreinlega kýs frekar að vera múhameðstrúar. Mér finnst það flott ef þú ert búinn að kynna þér trúnna vel og vandlega og ákveður að skipta um trú af þínum EIGIN ástæðum, en mér finnst það soldið ýkt að fara að vera með blæju, sérstaklega þar sem við erum enn í evrópu og það eru ekki það margir sem eru með blæju hérna.



Allavega, það eru mikil vandamál í sambandinu hjá þeim þar sem hann getur ekki kynnt hana fyrir foreldrum sínum sem verðandi eiginkonu þar sem hún er ekki lengur hrein mey! Já, og hún er að spá í að hætta í vinnunni sinni hérna vegna þess að hún getur ekki gengið í vinnuna og þarf að fá far með einum vinnufélaga sínum ( sem er karlmaður ) og það hreinlega gengur ekki, því kærastinn er svo afbrýðisamur. Eins bað hún alla strákana hérna um að snerta sig ekki meðan kærastinn væri í heimsókn vegna þess að hann gæti haldið að það væri eitthvað á milli þeirra.



Ég er svo yfir mig bit á þessu öllu saman að ég bara á ekki orð. Verst er samt hvað hún er ógeðslega mikil subba og ótrúlega ótillitssöm í sambúð.



Það var samt soldið fyndið í gær að þegar ég var að fara út var ég í soldið fleginni skyrtu og ég fékk þetta líka svaka augnaráð frá henni.Fyrir nokkrum vikum síðan fór ég niður í bæ með henni og Siggu og hún var endalaust að tala um að allar búðir nú til dags selja bara "hóruföt". Ótrúlegt!






Aumingja mamma getur varla sofið útaf þessu og vill að ég hafi samband við mömmu hennar, veit samt ekki alveg hvernig ég á að fara að því vegna þess að hún býr einhversstaðar í Berlín.



Greyið dreymdi í nótt að ég væri byrjuð að ganga með slæðu haha!






Annars var mér boðið á klassíska tónleika í gær í óperunni af honum Manúel. Spiluðu meðal annars verk eftir Debussy sem ég hef spilað sjálf, og er einn af mínum uppáhalds tónskáldum. Þetta voru mjög vel heppnaðir tónleikar í einu af flottasta óperuhúsi Evrópu svo ég var alls ekki ósátt.






Jæja, ætla að fara að þvo þvott fyrir ferðalagið mitt framundan....hlakka svo til !

martes, 6 de marzo de 2007

úlpan mín



man einhver eftir gamla fóstbræðra smellinum "úlpan mín" ? Nú það vildi svo til að ég var að reyna að sofna um daginn og var með þetta yndislega lag á heilanum. það eina er að það er ekki svo mikil laglína, allavega ekki svo ég muni eftir. Á endanum var þetta að verða frekar pirrandi eiginlega.


Annars er bara allt hið fínasta að frétta héðan, er búin að kynnast ferlega skemmtilegum strákum, svona djammfélögum dauðans, og það sem meira er...þeir eru eðlilegir, vitið ekki hvað það er erfitt að kynnast eðlilegu fólki hérna! Gaman að því. Um daginn voru þeir að spyrja mig og siggu um svona tíbískan íslenskan mat og ég ákvað að segja þeim frá hrútspungum. Málið er að maður getur sagt "huevos" um punga, sem þýðir bókstaflega egg. Jæja, ég sagði semsagt að svona tradicional íslenskur matur væri hrúts-"huevos". Mér fanst þetta mjög eðlilega sagt en var ekki alveg að skilja af hverju allt í einu þeir sprungu allir saman úr hlátri og spurðu mig hvað væri eiginlega að gerast þarna lengst í norðri, hvort það hefði sprungið einhver kjarnorkusprengja svo núna verptu kindur eggjum. hahaha. Fattaði þetta á endanum og útskýrði fyrir þeim að þetta væri nú ekki alveg svo gott heldur borðuðum við PUNGANA á hrútunum...breyttist þá svipurinn á þeim örlítið.

Vorum eitthvað búin að tala um hafa matarboð þar sem við íslensku stelpurnar elduðum tíbískan íslenskan mat en á endanum held ég að þeir hafi frekar viljað að við elduðum bara mexíkanskan eða eitthvað í staðinn.


Er annars búið að vera soldið erfitt að finna einhvern hérna sem fílar fótbolta. Málið er að það er leikur í kvöld sem mig langar mikið að sjá en það er ekki séns að ég fái að horfa á hann hérna heima því fólkið hérna bókstaflega hatar fótbolta...og já, ég hef reynt án árángurs að fá einhvern með mér á írska barinn hérna við hliðiná til að horfa á leikinn, en það bara virðist ekki vera að ganga. Kommon segi ég nú bara....Liverpool vs. Barca! Ohhhh.

Var alls ekki að fíla fótbolta fyrren ég fór út til UK. Þá bara hreinlega kemst maður ekki hjá því að fíla EKKI fótbolta, og ég komst að því að það er bara helvíti gaman að horfa á menn í stuttbuxum sparka bolta hehe, sérstaklega þegar þeir skora og fara úr að ofan :)


ps. mamma ef þú lest þetta, geturðu ekki reddað stefnumóti fyrir mig með einhverjum sætum fótboltastrák í sumar þegar ég kem heim? ....og já eldað brauðsúpu ( er mikið búin að vera að hugsa og tala um brauðsúpu undanfarið, en það trúir mér enginn að soðið brauð sé gott!, skil ekkert í þeim! ) Þú ert best!!!!


Jæja, sakna ykkar allra annars hrikalega....og skil ekkert í því að ég fái ekki fleiri heimsóknir. þið eruð lélegir aðdáendur!


...já og meðfylgjandi myndir eru af mér og Maríu góðvinkonu og svo af hinni stórkostlegu borg þar sem hin eina sanna ÉG á heima :)

lunes, 26 de febrero de 2007

espanish gossip


Spánverjar eru rosalega veikir fyrir slúðri! Ég hef aldrei séð það nema hérna að það séu þættir sem fjalla bara um slúður fræga fólksins ALLAN daginn. Þetta eru semsagt bara eins og venjulegar fréttir nema hvað að það er bara fjallað um fræga fólkið og hvað það sé að gera af sér. Það sem meira er, er að stundum er eitthvað fólk sett í lygamæli og það er spurt spjörunum úr...svo eru einhverjir spekúlantar þarna líka sem gagnrýna stjörnurnar og enda herlegheitin yfirleitt með rifrildum. Hvað er samt málið?? Mér finnst þetta frekar fáránlegt eiginlega. Einhver gömul sígauna flamenco söngkona sem hélt framhjá fyrir 30 árum og hvaða máli skiptir það?? Æ fáránlegt bara...mér finnst þetta svo hallærislegt eitthvað.


Annars er ég að skána smám saman, er allavega byrjuð að fara í skólann aftur og núna er nóg að gera til að ná upp þessari viku sem ég missti af í veikindunum. Er samt enn með smá hósta og gamla góða kvefið.


Gaman gaman...mig langar svo að fara að kaupa mér myndavél en ég er samt löt að fara að leita að einhverjum tilboðum o.s.frv. plús það að ég hef ekki græna glóru um hvað ég eigi að kaupa, pixelhvaað?? segi ég nú bara.


Jeje, hafið það gott gott og farið nú að koma í heimsókn til mín, er að verða einmana hérna í suðrinu...langar í smá ísland!

martes, 20 de febrero de 2007

Lilja lasarus




haldiði að mín hafi ekki vaknað upp á föstudagsmorgunn fyrir skóla og byrjað daginn á að æla... ( en skemmtileg byrjun á færslu annars, og jú degi! ) þessari blessuðu ælu fylgdi almennur slappleiki, kvef, hálsbólga, beinverkir, hiti, verkir í eyrum; semsagt FLENSA!!!! Þegar konan sem á húsið kom í heimsókn skömmu síðar og fór að spjalla við mig þá fór ég allt í einu að háskæla og gat engan vegin stöðvað mig....frekar vandræðalegt, sérstaklega þar sem ég þekki hana ekkert svo mikið. Þið vitið nú hvernig þetta er, þegar maður er svona lasinn vill maður bara hafa mömmu sína hjá sér að hjúkra manni. Í staðinn fékk ég knús frá "my landlord" og klapp á kollinn.

Síðan á föstudaginn hef ég semesagt legið í sófanum eins og slytti og ekki gert rassgat, hin mesta þrekraun að reisa mig upp til að fá mér vatnssopa og ég var svo slungin að biðja einn félaga minn um að færa mér tölvuna til að hafa allavega eitthvað til að gera á meðan ég er ein hérna.

Ég var búin að gleyma hvað það er ógeðslega leiðinlegt að vera lasinn...þetta er mesti viðbjóður maður! Maður er snýtandi sér í kílóatali og svitnandi eins og svín...já bara bull og vitleysa og ekkert annað. Ætti að leggja þessar flensur niður og banna með öllu finnst mér!


Þess vegna er nákvæmlega ekki neitt að frétta af mér, vegna þess að ég hef bara gert nákvæmlega ekki neitt hérna á spáníá.


Reyndar var frekar fyndið í gær, ég og Paula héldum að við værum einar heima fyrren paula ætlar á klósettið og þá er það læst. Við vitum náttúrulega ekkert hver er, sérstaklega því að við vorum búnar að vera inni í stofu í rúmlega klukkutíma og við hefðum tekið eftir öllum klósettferðum sambýlinga okkar. Nema hvað, að hálftíma seinna kemur Manuel út...með vinkonu sinni sem er í heimsókn hérna í augnablikinu. Maður spyr sig hvað hafi verið að gerast inni á baði. Sussubía, ólifnaðurinn hérna á þessu heimili!


Jæja...veit ekki hvað ég ætla að fara að gera núna, þar sem ég er búin með allar bækur sem ég á hérna, var að klára draumar á jörðu með Einari Má Guðmundsyni og líka Englar alheimsins...flottar bækur, liggur við að maður fái smá heimþrá!


martes, 13 de febrero de 2007

Bannsettar moskítóóóóóóóó


Mjög gaman eða hitt þó heldur. Rétt febrúar og þær eru aftur komnar á stjá...og ójá það sést sko á henni Lilju. Er í augnablikinu með 6 bit, eldrauð, risastór, bólgin og klæja. Skemmtilegasti staðurinn sem flugurnar ( eða flugan ) hafa valið sér að þessu sinni er ennið á mér. Djö verð ég pirruð á þeim! Ætti að útrýma þessum viðbjóðslegu skrímslum!!! Ég vaknaði meira að segja í morgun við það að ég var að klóra mér og það er svona gottvont vitiði?


Æji, aaallavega. Hér er bara hið minnsta að frétta í rauninni. Námið gengur bara ágætlega vona ég! Fyrir utan það að við erum ekki enn komin með einkunnir. Jájá spánverjar eru sko EKKERT að stressa sig á hlutunum, jú fyrir utan við nemendurnir, sem erum að verða heldur órólegir. Þetta er annars bara gaman sko, nóg að gera og maður þarf að reyna að skipuleggja sig nóg til að ná að klára allt saman sem maður er beðinn um að gera.


Í síðustu viku fór ég og hitti Siggu og kærastann hennar sem er í heimsókn í augnablikinu. Við skruppum aðeins út, og svo þegar ég var að fara heim þá tók ég taxa. nema hvað að gaurinn fer að tala um að hann sé nú fimmtugur og konan hans frá Kúbu sé nýorðin tvítug og svona...og "henni" sé farið að langa í aðra stelpu í rúmið. Karlinum hefur fundist ég eitthvað líkleg í þetta verk því hann spyr mig hvort ég vilji koma í þríleik með sér og konunni sinni. Bauðst meira að segja til að keyra heim til sín núna og það myndi bara taka um 1 til 2 tíma og svo gæti hann keyrt mig aftur heim...og já hann myndi sko ekki rukka mig neitt meir fyrir taxann ( nú!! Þvílíkt eðalmenni!!! ) ( og já, eðalmennið sagði að ég mætti líka ráða hvort ég væri bara með honum eða með honum og konunni sinni, viljiði spá!!!!! )Ég eiginlega þorði ekki að öskra á hann helvítis perraviðbjóður því maður veit aldrei hvernig viðbrögð maður fær svo ég bara þagði og fór svo út. Hann reyndi að kyssa mig áður en ég komst út úr bílnum en ég náði að smeygja mér undan honum.

Nema hvað að í gær þurfti ég að fara út í búð eftir að það var orðið dimmt. Það var samt alveg fólk á götunni og svona, en ég var samt eitthvað frekar smeyk ef ske kynni að karlfautinn væri þarna eitthvað, hann veit jú hvar ég á heima. Mamma heldur að hann myndi örugglega ekki fara að gera svoleiðis, og ég bara rétt vona það. En ég ætla samt að reyna að finna mér svona tæki sem maður setur á lyklakippuna sem maður ýtir á takka og það kemur þvílíkur hávaði, já það eða eitthvað sprey. Veitiggi, finnst þetta eitthvað óþægilegt.
En núna er mig farið að klæja ískyggilega mikið í bitin mín fögru svo ég ætla að fara að bera á mig krem. Hasta la vista!